Frétt — Enter — 17. 3. 2011
Hótar hernaðarlegri íhlutun í málefni föður síns
Feðgarnir ásamt peysunni, meðan allt lék í lyndi.

Karlmaður á fertugsaldri hefur hótað föður sínum hernaðarlegri íhlutun í málefni hans vegna óásættanlegs ágreinings milli þeirra.

Hefur faðir mannsins um árabil klæðst sömu peysunni við hátíðleg tilefni og samkomur innan fjölskyldunnar þrátt fyrir ítrekuð og allhávær mótmæli sonar síns og annarra fjölskyldumeðlima.

Peysan sem um ræðir er svokölluð hálfrúllukragapeysa sem komst fyrir tilviljun í tísku árið 1989. Var hún gjöf frá móðursystur núverandi eiganda síns og hefur verið í miklu uppáhaldi hjá honum æ síðan.

Sáttaumleitanir fóru út um þúfur um liðna helgi og hefur sonurinn nú hótað að senda skriðdrekasveitir inn á heimili föður síns hafi hann ekki fargað peysunni eða komið henni úr landi fyrir hádegi á föstudag.

Óska eftir

stúlku/stúlkum til að skemmta sæmilega þekktum Yemenskum kvikmyndaleikstjóra yfir helgina. Gott kaup. A.v.á.

Lesbók19. 7. 2018 — Enter

Ég sé að full­hátt­virtur forseti hins háa Al­þingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurð­ar­veisluna sem hann hélt á Völl­unum að við­stöddu fá­menni í gær.

„Forseti Al­þingis harmar að heim­sókn danska þing­forsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðar­höldin og leyfir sér að trúa því að það sé minni­hluta­sjónar­mið að við­­eigandi sé að sýna danska þing­­for­setanum óvirð­ingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóð­þingsins og dönsku þjóðar­innar.“ — segir forseti.

Ég mót­mæli herra forseti.

Þessi van­hugsaða og alls óvel­komna heim­sókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjöl­milljóna­partíið þitt. Heiðurs­gesturinn flótta­legi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðana­myrka skugga á hátíða­höldin og eyði­leggja þau gersam­lega.

Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa út­dönkuðu rasista­píu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þing­forseta yfir­höfuð.

Það er nefni­lega míkró­minni­hluta­sjónar­mið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauð­klædda rasista og leiða til hásætis á hátíðar­þing­fundi á sjálfu Lög­bergi. Og það að gera lítið úr gagn­rýni á þetta skipulags­slys er ekkert annað ómerki­legt yfir­klór og eftirá­mjálm.

Svo eiga menn bara að drullu­fruss­fretast til að biðjast af­sökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðli­legum við­brögðum við þessum skammar­lega undir­lægju– og druslu­gungu­hætti.

Góðar stundir.

 
Frétt — Enter — 13. 2. 2019
Jólasveinarnir fá jafnlaunavottun
Kertasníkir ásamt Fjölmiðlafælni, sem er í starfsnámi hjá fyrirtækinu.

Fyrirtæki íslensku jólasveinanna fékk í dag jafnlaunavottun, en félagið hefur á undanförnum árum tekið með skipulögðum hætti á kynbundnum launamun innan fyrirtækisins og komið á metnaðarfullri jafnréttisstefnu.

„Við erum mjög ánægðir, eða alltsvo ánægð með þetta. Það eru að vísu mestmegnis karlmenn, sem starfa hjá okkur, eða eingöngu eiginlega, sem stendur. En það breytir því ekki að þetta er mikill heiður fyrir okkur… öll,“ segir Kertasníkir Leppalúðason, framkvæmdastjóri mannauðs– og jafréttissviðs Jólasveinanna.

Hann segist jafnframt vonast til að fleiri konur (og raunar fólk af öllum mögulegum kynjum) bætist í þessa rótgrónu — og um margt íhaldssömu stétt — á næstu áratugum eða öldum. Hann tekur þó fram að öllu slík aðlögun taki tíma og þurfi auðvitað að ígrunda vel. Hann áætlar að í dag séu um 300 sveinar í starfsnámi hjá félaginu, „allt jú, mögulega karlmenn“.

Frétt — Enter — 7. 2. 2019
Fékk sér snjallkall
Kristín ásamt snjallkallinum, sem hún kallar Snata.

Kristín Framnes hefur tryggt sér fyrsta íslenska eintakið af svonefndum „snjallkalli“ af gerðinni Man–o–matic 3030b.

Er þetta þáttur í alhliða snjallvæðingu heimilisins, en Kristín hefur þegar fest kaup á snjallperum, snjalleldhúsi, snjallúri, snjallsjónvarpi, snjallbíl, snjallsímstöð, snjallþvottavél, snjallrúmi, snjalltrampólíni og snjallhamstri.

Snjallkallinn hlýðir öllum fyrirmælum fljótt og vel, heldur uppi lágmarkssamræðum og er með öllu áhugalaus um knattleiki. Hann talar lýtalausa íslensku og kann skil á öllum helstu heimilisstörfum. Þá kemur hann með sérstöku unaðsprógrammi, sem þó er enn í Beta–prófunum.

Fyrrum eiginmaður Kristínar fæst gefins, gegn því að vera sóttur.

Frétt — Númi Fannsker — 5. 2. 2019
Bára og mögulegur vitorðsmaður nást á mynd
Bára (t.v.) og meintur vitorðsmaður hennar virðast vera í afar vönduðum dulargervum á myndinni.

Svo virðist sem Bára Halldórsdóttir, hljóðmeistari, og hugsanlegur vitorðsmaður hennar hafi náðst á mynd í öryggismyndavélakerfi Klaustur bars mánudaginn 19. nóvember. Er talið að þau hafi verið að koma fyrir hlerunarbúnaði og gera svokallað „sándtest,“ sem mun vera forsenda þess að gæði hljóðupptaka séu tryggð. Þau hafi svo kvöldið eftir beitt sérþekkingu sinni og háþróaðri upptökutækni til að taka upp spjall grunlausra gesta.

Á myndinni sjást Bára og meintur vitorðsmaður hennar taka ljósmyndir til að undirbúa aðgerðir kvöldið eftir. Sérstaka athygli vekur að þau eru í afar vönduðum dulargervum.

Borgarlögmenn

óskast til að veita ráðgjöf á öllum sviðum borgarmála. Fullum trúnaði heitið. A.v.á.

Frétt — Enter — 4. 2. 2019
Ný yfirflugfreyja WOW
Það kom sér vel fyrir Elísabetu að eiga allnokkur freyjuklæði á lager.

Elísabet Alexandra María Georgsdóttir, fyrrum drottning, hefur verið ráðin yfirflugfreyja hjá íslenska flugfélaginu WOWi.

Elísabet, eða Beta eins og hún er jafnan kölluð, er þekkt fyrir ríka þjónustulund, brennandi áhuga á ferðalögum og yfirburða kímnigáfu og því þótti hún smellpassa í hlutverkið.

Hún hefur ekki áhyggjur af því að takast á við nýtt hlutverk, komin á tíræðisaldurinn. „Nei, veistu, það er öllum hollt að skipta um starfsvettvang öðru hverju. Annars bara staðnar maður. Sjálf var ég svona að detta í netta kulnun.“

„Ég er líka pínu stressuð útaf þessu Brexit–kjaftæði öllu og vildi bara fá mér tryggari vinnu,“ sagði Elísabet að lokum áður en hún renndi sér fótskriðu eftir endilangri vélinni.

Frétt — Enter — 1. 2. 2019
Smári til Elísabetar
Það verður virkilega spennandi að fylgjast með Smára í framtíðinni. Hver skyldi hann fara næst?

Smári Snorrfinnsson hefur flutt lögheimili sitt frá móður sinni, Magðalenu, til Elísabetar Strömm, húsfreyju.

Smári er menntaður númiðlunartæknifræðingur og er með MBA gráðu í framvirkum sammiðlunarfræðum frá konunglega miðlunarskólanum í Drammen.

Að sögn Smára hefur hann lengi dreymt um að skipta um umhverfi og hlakkar hann til að takast á við ný og spennandi verkefni á heimili Elísabetar. Þar mun hann hafa yfirumsjón með öllum þvotti ásamt matseld á þriðju– og fimmtudögum, þá mun hann taka við alhliða dagskrárstjórn á skjámiðlum heimilisins ásamt því að vinna að þróun hreyfiáætlunar fyrir fressköttinn Bartólemeus.

Að sögn Magðalenu, móður Smára, og fyrrum vinnuveitanda verður leitast við að ráða sem fyrst í stöðu hans á heimilinu, eða einfaldlega festa kaup á snjallryksugu.

Frétt — Enter — 31. 7. 2018
Sorrí með mig
Lóa Hjálmtýsdóttir myndskreytti lagið af kostgæfni.

Hljómsveitin Baggalútur hefur sent frá sér nýtt dægurlag. Lagið heitir „Sorrí með mig“ og er ákaflega skemmtilegt og jafnframt áheyrilegt.

Lagið er nú komið á „Veraldarvefinn“, „Alnetið“ og jafnvel sjálft „Lýðnetið“ og er fáanlegt hjá eftirtöldum aðilum:

Hljóðskráargáttin Spotify

Myndskráargáttin YouTube

Við höfum aukinheldur, undir merkjum aukins gagnsæis, ákveðið að dreifa laginu á nótum. Þannig getur fólk betur áttað sig á verkinu, lært textann og jafnvel raulað laglínuna fyrir munni sér — áður en það hlýðir á það í fyrsta skipti.

Nótur má nálgast hér.

Beint flug í sænska lesbíubæinn!

Pantaðu strax, það er allt að fyllast.
Iceland Express

Frétt — Enter — 6. 2. 2018
Vilja setja borgarstjóra í stokk
Auðveldlega mætti setja alla íbúa Miklubrautar í stokk.

Samtök áhugafólks um bílríkan lífsstíl hafa krafist þess að borgarstjóri verði settur í stokk til að refsa honum fyrir aðförina að einkabílnum í borginni.

Vilja þeir koma honum og öðrum andfélagslegum samgönguglæpamönnum (holuunnendum, hjólariðlum, stæðisfælum og strætófíklum) fyrir í þartilgerðum gapastokkum á fjölförnum stað — eins og til að mynda Stjörnutorgi — þar sem næg bílastæði eru og gott aðgengi að fæði til að kasta að stokkunum.

Það eru samtökin „elskhugar einkabílsins“ sem leggja þetta til. En þeir vilja geta notið ásta með bifreiðum sínum, óáreittir og í einrúmi á götum borgarinnar. Samtökin eru með höfuðstöðvar sínar á Seltjarnarnesi.

Frétt — Enter — 1. 4. 2017
Aprílgabb Baggalúts fellur niður
Elvis hyggst í staðinn verja deginum á Háspennu við Lækjartorg.

Hið óvænta, sprenghlægilega og árvissa aprílgabb Baggalúts felllur niður í ár, en með því vill Baggalútur styðja baráttuna gegn svokölluðum falsfréttum eða „fake news“.

Af þessum sökum verður tónlistarmaðurinn góðkunni Elvis Presley EKKI ber að ofan í Bláa lóninu í dag að syngja fallegu lögin sín og gefa iPhone síma eins og undanfarin ár.

Þeim sem vilja engu að síður láta gabbast er bent á íslenskar fjármálastofnanir, kaupmenn og hin ýmsu leigufélög.

Frétt — Enter — 29. 3. 2017
Hauck og Aufhäuser voru í raun þýskur tölvurafpoppdúett
Hauck og Aufhäuser á sínum velmektarárum.

Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sannreynt að hinir dularfullu Hauck & Aufhäuser komu aldrei að kaupum Búnaðarbankans ólíkt því sem haldið hefur verið fram frá upphafi.

Hið sanna er að þeir Helmut Hauck og Dolph Aufhäuser mynda í raun þýskan tölvurafpoppdúett sem Ólafur Ólafsson, peningamaður, virðist hafa haft mikið dálæti á.

Að sögn Hauck, sem starfar nú sem barnatannlæknir í Dusseldorf, hafði Ólafur samband við þá gegnum pennavinadálk tímaritsins Bravo og vildi endilega fá þá til að spila í afmælinu sínu.

„Við kvittuðum á einhverja pappíra og æfðum upp prógramm með íslenskum dægurlögum, en heyrðum svo aldrei aftur í herr Olafsson,“ segir Hauck sem kveðst vera í litlu sambandi við sinn gamla félaga, Aufhäuser, sem starfar nú sem barþjónn á hollensku skemmtiferðaskipi.

Frétt — Enter — 28. 3. 2017
HB Grandi leikur illmennið í næstu Bondmynd
Framkvæmdastjóri SFS þykir einnig eiga góða möguleika á að landa hlutverki í myndinni.

Útgerðarfélagið geðþekka, HB Grandi, mun leika skúrkinn í næstu kvikmynd um siðblinda alkóhólistann og flagarann morðóða James Bond.

Í kvikmyndinni á Bond í höggi við dularfullan aðalsmann sem virðist sjúga blóð úr íbúum í afskekktu sjávarþorpi. Vondi greifinn er með pattaralegan bæjarstjórann í vasanum og enginn þorir að rísa gegn honum af ótta um líf sitt og fjárhagslega afkomu samfélagsins.

Bond fer að gruna kauða um græsku þegar hann uppgötvar að vodkamartíníið á þorpskránni er svívirðilega dýrt og sterlingspundið grunsamlega óhagstætt gagnvart gjaldmiðli staðarins. Auk þess sem hvergi er hægt að fá ætt sushi í bænum, þrátt fyrir fengsæl fiskimið og sæmilega háa meðalgreind íbúanna.

Vildu aðstandendur myndarinnar fá sem ógeðfelldastan leikara í hlutverkið sem nyti engrar samúðar áhorfenda. Hafði HB Grandi betur en m.a. sjálft Alienskrímslið, flenniapinn King Kong og Magnús Scheving.



§ Spiladós




§ Úr safni Baggalúts:
ÚR SAFNI — 12. 4. 2016 — Enter

Siðareglur ritstjórnar Baggalúts hafa verið felldar úr gildi. Er þetta gert til að auðvelda skrif og umfjöllun miðilsins m.a. um …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 1. 10. 2003 — Enter

Sál- og atferlisfræðingar eru sem þrumu lostnir yfir háttalagi Geirmars Skúlasonar læknis, sem sagðist í morgun ekki nenna að sinna …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 3. 4. 2003 — Enter

Stöðva þurfti árlega páskeggjaleit leikskóla Reykjavíkurborgar þegar í ljós kom að óvenju ósvífinn átfíkill hafði mútað starfsmanni og komist …

»MEIRA

LESBÓK — Númi Fannsker — Dagbók
 
LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 9. 2. 2004 — Spesi

Jónas R. Jónsson, umboðsmaður íslenska hestsins, hefur sett á stofn nýja þjónustu sem ætlað er að veita einhleypum hestum meiri …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 18. 11. 2003 — Enter

Innanhússpekúlantinn og mannvinurinn Valgerður Matthíasdóttir hefur gert samning við lögregluyfirvöld og skattrannsóknastjóra um samstarf við gerð þáttanna 'Innlit-Útlit'. "..þetta verður fjögurra …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 8. 3. 2013 — Enter

Tölvert ónæði hefur orðið víða um land vegna lausagöngu kvenna, á svokölluðum kvennadegi. Hafa konur víða hópað sig saman — og …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
LESBÓK — Spesi — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 28. 2. 2003 — Myglar

Kristján Pálsson alþingismaður hefur ákveðið að bjóða fram í sérkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Kristján fékk sem kunnugt er ekki sæti á …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 16. 10. 2002 — Númi Fannsker

Lamadýr var kosið þingforseti sænska þingsins fyrir algeran misskilning nú í morgun. Svo virðist sem þingmenn hafi af einskærum klaufaskap …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 4. 9. 2008 — Enter

Sá fáheyrði viðburður varð á heimili í Fossvoginum í morgun að þvottavél af gerðinni AEG WashManiac 3000 framkallaði lítið svarthol …

»MEIRA